7. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jan – Febrúar – Mars | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | |
2008 Allir dagar |
7. febrúar er 38. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 327 dagar (328 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 1074 - Orrustan við Montesarchio þar sem Pandúlfur 4. fursti af Beneventum var drepinn af normannaher.
- 1301 - Játvarður Caernarvon varð fyrsti prinsinn af Wales.
- 1497 - Fylgismenn Giovanni Savonarola brenndu ósiðlega hluti í „bálför hégómleikans“.
- 1613 – Mikael Rómanov varð keisari í Rússlandi.
- 1863 – HMS Orpheus sökk utan við Auckland á Nýja-Sjálandi. 189 manns fórust.
- 1882 – Síðasti hnefaleikabardaginn í þungavigt án hanska fór fram í Mississippi.
- 1898 – Émile Zola var leiddur fyrir rétt fyrir að gefa út greinina „Ég ákæri“ („J'Accuse“).
- 1900 – Verkamannaflokkurinn var stofnaður í Bretlandi.
- 1914 – Charlie Chaplin birtist í fyrsta sinn sem litli flækingurinn.
- 1940 – Walt Disney gaf út teiknimyndina um Gosa.
- 1942 – Húsmæðraskóli Reykjavíkur tók til starfa undir stjórn Huldu Á. Stefánsdóttur.
- 1962 – Bandaríkin bönnuðu allan inn- og útflutning frá Kúbu.
- 1964 – Bítlarnir komu fyrst til Bandaríkjanna.
- 1971 – Konur fengu kosningarétt í Sviss.
- 1974 – Grenada öðlaðist sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1974 – Fyrsta lending Concordeþotu á Keflavíkurflugvelli. Á leiðinni frá Frakklandi flaug hún á tvöföldum hljóðhraða.
- 1985 – „New York, New York“ varð opinber söngur New York-borgar.
- 1986 – Jean-Claude Duvalier flúði Haítí.
- 1990 – Hrun Sovétríkjanna: Miðstjórn kommúnistaflokksins samþykkti að aðrir flokkar gætu tekið þátt í stjórn landsins.
- 1991 – Fyrsti lýðræðislegi forseti Haítí, Jean-Bertrand Aristide, tók við embætti.
- 1992 – Evrópusambandið var stofnað með Maastrichtsamningnum.
- 1998 – Vetrarólympíuleikarnir hófust í Nagano, Japan.
- 1999 – Abdullah prins tók við krúnunni í Jórdaníu eftir dauða föður síns, Husseins konungs.
- 2006 - Egypsk ferja með um 1400 manns innanborðs sökk í Rauðahafið undan ströndum Sádí-Arabíu.
[breyta] Fædd
- 1812 - Charles Dickens, breskur rithöfundur (d. 1870).
- 1877 - Godfrey Harold Hardy, breskur stærðfræðingur (d. 1947).
- 1885 - Sinclair Lewis, bandarískur rithöfundur (d. 1951).
- 1917 - Gylfi Þ. Gíslason, íslenskur stjórnmálamaður (2004).
- 1962 - Eddie Izzard, breskur leikari og grínisti.
- 1977 - Ívar Örn Sverrisson, íslenskur leikari.
[breyta] Dáin
- 590 - Pelagíus 2. páfi.
- 1560 - Bartolommeo Bandinelli, ítalskur myndhöggvari (f. 1493)
- 1685 - Karl 2. Englandskonungur (f. 1630).
- 1693 - Paul Pellisson, franskur rithöfundur (f. 1624).
- 1799 - Qianlong, keisari í Kína (f. 1711).
- 1823 - Ann Radcliffe, enskur rithöfundur (f. 1764).
- 1878 – Píus 9. páfi (f. 1792).
- 1885 - Sinclair Lewis, bandarískur rithöfundur (f. 1951).
- 1931 - Tommaso Tittoni, forsætisráðherra Ítalíu (f. 1855).
- 1979 - Josef Mengele, þýskur stríðsglæpamaður (f. 1911).
- 1987 - Claudio Villa, ítalskur söngvari (f. 1926).
- 1999 - Hussein konungur Jórdaníu (f. 1935).
[breyta] Hátíðis- og tyllidagar
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |