25. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jan – Febrúar – Mars | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | |
2008 Allir dagar |
25. febrúar er 56. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 309 dagar (310 á hlaupári) eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1570 - Píus 5. páfi bannfærði Elísabetu 1. með páfabullunni Regnans in Excelsis.
- 1601 - Robert Devereux hálshöggvinn fyrir drottinsvik.
- 1601 - Tycho Brahe flutti með öll sín tæki í höll Curtiusar í Prag.
- 1623 - Maximilían hertogi af Bæjaralandi var skipaður einvaldur í Pfalz.
- 1634 - Albrecht von Wallenstein, hershöfðingi keisarans í Þrjátíu ára stríðinu, var myrtur að ósk keisarans.
- 1672 - Þórður Þorláksson var vígður Skálholtsbiskup.
- 1836 - Samuel Colt fékk bandarískt einkaleyfi á Colt-skammbyssu.
- 1920 - Jón Magnússon varð forsætisráðherra Íslands í annað sinn og sat ríkisstjórn hans að völdum í tvö ár.
- 1921 - Rauði herinn kom til Tbilisi og setti upp kommúníska leppstjórn.
- 1942 - Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna var stofnuð.
- 1944 - Alþingi samþykkti einróma að sambandslögin um konungssamband Íslands og Danmerkur væru fallin úr gildi.
- 1964 - Fyrsta skopmynd Sigmunds Jóhannssonar frá Vestmannaeyjum birtist í Morgunblaðinu og sýndi hún landgöngu í Surtsey.
- 1966 - Bandaríska söngkonan Ella Fitzgerald kom til Íslands og hélt tónleika í Háskólabíói.
- 1975 - Ragnhildur Helgadóttir var fyrst kvenna kosin forseti Norðurlandaráðs á þingi þess sem haldið var í Reykjavík.
[breyta] Fædd
- 1643 - Akmeð 2. Tyrkjasoldán (d. 1695).
- 1841 - Pierre-Auguste Renoir, franskur myndhöggvari (d. 1919).
- 1890 - Vjatsjeslav Mólotov, sovéskur stjórnmálamaður (d. 1986).
- 1897 - Pétur Hoffmann Salómonsson, íslenskur sjómaður og safnari (d. 1980).
- 1943 - George Harrison, gítarleikari í Bítlunum (d. 2001).
- 1947 - Doug Yule, bandarískur bassaleikari, (The Velvet Underground).
- 1950 - Néstor Kirchner, forseti Argentínu.
- 1953 - José María Aznar, forsætisráðherra Spánar.
- 1974 - Nína Dögg Filippusdóttir, íslensk leikkona.
- 1981 - Park Ji-Sung, suður-kóreskur knattspyrnumaður.
- 1982 - Bert McCracken, bandarískur söngvari (The Used).
[breyta] Dáin
- 1634 - Albrecht von Wallenstein, tékkneskur hershöfðingi (f. 1583).
- 1713 - Friðrik 1. Prússakonungur (f. 1657).
- 1723 - Christopher Wren, enskur arkitekt (f. 1623).
- 1934 - Björg Karítas Þorláksdóttir, íslenskur sálfræðingur (f. 1874).
- 1983 - Tennessee Williams, bandarískt leikskáld (f. 1911).
- 1999 - Glenn T. Seaborg, bandarískur efnafræðingur, handhafi Nóbelsverðlaunanna í efnafræði (f. 1912).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |