Andlát (hljómsveit)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Andlát er íslensk rokkhljómsveit sem var stofnuð í ágúst árið 2000. Meðlimir voru þeir Siggi T (söngur), Haukur (sem einnig var í MYRA og Squirt) á bassa, Valur (Squirt og Ask the Slave) á trommum og Ingi (SnaFu, I adapt) á gítar.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Hljómsveitin byrjaði að æfa í bílskúr í Vesturbænum. Demóið „Salt“ var gefið út af Harðkjarna nokkrum mánuðum seinna. Fljótlega var farið að leita að auka gítarleikara og voru nokkrir sem prufuðu, þar á meðal Snorri (B-Eyez) og Smári Tarfur (Brain Police). Á endanum var það Bjarki (Finnegan) sem var valinn gítarleikari fyrir hljómsveitina. Stefnan var tekin á músíktilraunir 2001 og sigraði hljómsveitin[1] þar. Þá var Ingi valinn besti gítarleikarinn.
Árið 2002 hætti Ingi í hljómsveitinni og Maggi (Gyllinæð, Stegla) kom inn á trommur og Valur færði sig yfir á gítarinn. Andlát gáfu út diskinn „Mors Longa“ árið 2004 og fóru í tónleikaferðalag um Evrópu til að auglýsa diskinn. Hljómsveitin ákvað að hætta eftir ferðina þar sem meðlimimum langaði að fara að einbeita sér að öðrum hlutum. Andlát komu fram á kveðjutónleikum árið [2005] og léku fyrir fullu húsi í Norðurkjallaranum. 2006 komu Andlát saman í seinasta skipti til að taka upp efni fyrir DVD-disk um hljómsveitina.
[breyta] Útgefin verk
[breyta] Heimild
- ↑ Músíktilraunir 2007 (Saga Músíktilrauna). Skoðað 2. ágúst, 2007.