David Ricardo
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
David Ricardo (18. apríl 1772 í London á Englandi — 11. september 1823) var breskur stjórnmálafræðingur og hagfræðingur af portúgölskum ættum. Honum er oft eignaður heiðurinn á því að hafa kerfisbundið hagfræðina en hann var ásamt þeim Thomasi Malthus og Adam Smith einn áhrifamesti hagfræðingur sögunnar. Ricardo var einnig viðskiptamaður, fjárfestir og auðmaður.