Eiginkona
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eiginkona (í eldri íslensku eignarkona, ektakvinna eða ektavíf) er kvenkyns aðilinn í hjónabandi. Gagnkynhneigð kona sem giftist karlmanni verður eiginkona við giftingu, en er rétt fyrir og eftir athöfnina nefnd brúður og karlmaðurinn brúðgumi. Bíðandi eiginkona var nefnd biðkván í forníslensku, og í skáldamáli var eiginkona stundum nefnd eyrarúna, inna og spúsa. Hið síðastnefnda er oft notað enn þann dag í dag.
Þessi grein er stubbur sem ekki hefur verið settur í undirflokk. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina, eða með því að flokka hana betur.