Hjónaband
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hjónaband er sáttmáli, oftast siðferðilegur, trúarlegur og lagalegur, milli tveggja einstaklinga um samvistir og sameiginlega ábyrgð, þar sem einstaklingarnir ákveða að eyða ævinni saman og ala upp börn sín í sameiningu. Hjónaband fyrirfinnst í nánast öllum samfélögum manna, og jafnvel í elstu heimildum virðist sem hjónaband hafi verið orðið að hefð. Þótt ýmsir mannfræðingar hafi rannsakað hjónaband í mismunandi samfélögum er lítið vitað um uppruna þess.
Oft er haldin sérstök athöfn þegar tveir aðilar ganga í hjónaband og nefnist hún gifting, en eftir athöfnina er gjarnan haldin brúðkaupsveisla.
Í vestrænum löndum er yfirleitt um einkvæni að ræða, þar sem einn karlmaður og ein kona ganga í hjúskap og kallast þá eiginmaður og eiginkona, en í öðrum heimshlutum þekkist fjölkvæni, þar sem einn karlmaður gengur í hjúskap með mörgum konum. Einnig fyrirfinnst fjölveri, þar sem ein kona er í hjúskap með mörgum karlmönnum, en slíkt er þó mun óalgengara.
Á undanförnum árum hafa ýmis vestræn samfélög (þar á meðal Ísland), lögfest heimild samkynhneigðra til staðfesta sambúð með einstaklingi af sama kyni, sem er sambærilegt hjónabandi.
[breyta] Tenglar
- Vísindavefurinn: „Hver er lagaleg skilgreining á orðinu hjúskapur?“
- Vísindavefurinn: „Hvað gildir um skyldleika hjónaefna, mega til dæmis fjórmenningar giftast?“
- Vísindavefurinn: „Hver er uppruni orðanna hjónaband og hjón? Eru til skyld orð í öðrum tungumálum?“
- Hvaða sambýlisform kýs framtíðin?; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971
- Háskólafyrirlestrar um hjónabönd; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1933