Eintala
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eintala (skammstafað sem et.) er hugtak í málfræði. Eintala er tala, sem gefur til kynna eitt.
[breyta] Dæmi
et. | ft. |
---|---|
maður | menn |
belja | beljur |
tuska | tuskur |
[breyta] Listi yfir eintöluorð í íslensku
Sum nafnorð í íslensku eru eintöluorð, en það eru orð sem ekki eru til í fleirtölu. Hér fyrir neðan er listi yfir þau helstu:
- áhugi
- áræði
- bensín
- fé
- fjöldi
- fólk
- gleði (Ath. í merkingunni veisla er stundum talað um gleðir)
- gull (ath. í merkingunni leikföng er stundum talað um gull í fleirtölu)
- hugrekki
- húsnæði
- kaffi
- málstaður
- mjólk
- reiði
- skyr
- sykur
- te
- verð
- þjóðerni