Fleirtala
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fleirtala (skammstafað sem ft.) er hugtak í málfræði og tala, sem gefur oftast til kynna fleiri en eitt fyrirbæri.
Dæmi:
et. | fleirtala |
---|---|
maður | menn |
belja | beljur |
tuska | tuskur |
Mörg orð hafa tvær eða jafnvel fleiri mismunandi fleirtölur eins og orðið kleinuhringur sem getur bæði verið „kleinuhringir“ eða „kleinuhringar“ í fleirtölu. Til að sjá fleiri dæmi má skoða listann yfir mismunandi rithætti íslenskra orða.
[breyta] Listi yfir fleirtöluorð í íslensku
Sum orð í íslensku eru fleirtöluorð, en það eru orð sem ekki eru til í eintölu. Tvennt ber að varast við fleirtöluorð. Í fyrsta lagi þegar talað er um þau með tölulýsingarorðum upp að fimm (sbr.: einir, tvennir, þrennir, fernir og svo fimm), enda ekki sagt tvær buxur, heldur tvennar buxur, en auðvitað er talað um fimm buxur. Í öðru lagi er orðið báðir ekki notað með fleirtöluorðum.
Hér fyrir neðan er listi yfir helstu fleirtöluorðin í íslensku og með dæmum:
- buxur - Hann er Sjálfstæðismaður og á fernar buxur, en það vantar skálmar á þær allar.
- börur - Við erum bara með einar hjólbörur, sagði Tómas og leit á Einar.
- dyr - Hann keypti sér þrennra dyra bíl, en til að forðast að segja þrennra dyra sagði hann þriggja hurða.
- feðgar - Fyrir ári síðan létust þrennir feðgar í hópfaðmlagi í fallhlífastökki.
- hjón - Í gær ætluðu þrenn nýbökuð hjón að keppa í uppvaski. Keppninni var aflýst vegna veikinda.
- lög - Þrennra laga er saknað af nýafstöðnu þingi. Vestmannaeyingum er brugðið vegna þessa.
- mæðgur - Við hittum hvorar tveggja mæðgurnar, og drukkum kaffi þar til við vorum orðnir grænir.
- rök - Hvor tveggja rökin eru minna virði en skósnæri.
- samtök - Á þinginu voru fulltrúar tvennra samtaka um betra þjóðlíf, og áður en dagur var liðinn kom til handalögmála.
- skyndikynni - Ein skyndikynni á ævinni eru lágmark, sagði Óli varta.
- verðlaun - Hann vann til þrennra verðlauna, og öll vegna klíkuskapar.