Helförin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Helförin er hugtak sem er notað til þess að lýsa skipulögðum fjöldamorðum á evrópskum gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni. Fjöldamorðin voru liður í áætlun þýskra nasista undir stjórn Adolfs Hitler til þess að útrýma gyðingum. Um 6 milljónir gyðinga fórust í styrjöldinni og stór hluti þeirra í sérstökum útrýmigarbúðum.[1]
Aðrir hópar fólks sættu einnig ofsóknum og voru drepnir af nasistum, þ.á m. fatlaðir, samkynhneigðir, kommúnistar, vitni Jehóva, Pólverjar, Rússar, Hvítrússar og Úkraínumenn. Stundum eru þessir hópar fólks ekki taldir með í helförinni, sem er þá eingöngu talin vera fjöldamorð á gyðingum sem liður í „lokalausninni við gyðingavandanum“ („Die Endlösung der Judenfrage“) eins og nasistar nefndu áætlunina. Séu öll fórnarlömb ofsókna nasista tekin með í reikninginn er talið að heildarfjöldi fórnarlamba nemi 9 og 11 milljónum.
Ofsóknir og fjöldamorð nasista jókst í nokkrum stigum. Sett voru lög sem úthýstu gyðingum úr samfélaginu nokkrum árum áður en síðari heimsstyrjöldin braust út. Þegar Þriðja ríkið náði yfirráðum yfir nýju landi í Austur-Evrópu og Rússlandi voru stofnuð sérstök gyðingahverfi til þess að halda gyðingum aðskildum. Sérstakar sveitir þýska hersins myrti mikinn fjölda gyðinga og annarra stjórnmálaandstæðinga nasista innan gyðingahverfanna og annars staðar þar sem þeirra varð vart. Gyðingar í Vestur-Evrópu voru oftast fluttir fluttir austur í sérstakar þrælkunarbúðir sem voru reistar víða en flestar í Austur-Evrópu. Skipulagðar útrýmingarbúðir voru teknar í notkun á síðari árum stríðsins.
[breyta] Afneitun helfararinnar
Lítill hópur manna afneitar helförinni og segir hana ekki hafa gerst með þeim hætti sem almennt er viðurkennt. Í mörgum vestrænum ríkjum liggja þungar refsingar við afneitun helfararinnar.
[breyta] Tilvísanir
- ↑ Niewyk, Donald L. The Columbia Guide to the Holocaust (New York: Columbia University Press, 2000): 45.
[breyta] Tenglar
- Vísindavefurinn: „Getur verið að færri Gyðingar hafi dáið í helförinni en talið hefur verið?“
- Vísindavefurinn: „Hver var Anna Frank og fyrir hvað er hún svona fræg?“
Seinni heimsstyrjöldin | |||||
---|---|---|---|---|---|
Vestur-Evrópa · Austur-Evrópa · Norður-Afríka · Miðjarðarhafið · Asía og Kyrrahafið · Atlantshafið |
|||||
Helstu þátttakendur |
Tímaás |
Ýmislegt |
|||
|
Aðdragandi 1937 1939 1940 1941 1942 |
1943 1944 1945 • Ýmsar orrustur Eftirmáli og afleiðingar |
• Andpyrnuhreyfingar Stríðsglæpir og áhrif á óbreytta borgara |
||
Bandamenn | Öxulveldin | ||||
Stríðandi þjóðir 1937 Hófu þátttöku í stríðinu 1939 |
Hófu þátttöku í stríðinu 1941 Hófu þátttöku í stríðinu 1943 |
Stríðandi þjóðir 1937 Hófu þátttöku í stríðinu 1940 Hófu þátttöku í stríðinu 1941 Hófu þátttöku í stríðinu 1942 Hófu þátttöku í stríðinu 1943 • Aðrar þjóðir |
|||
• Leiðtogar bandamanna |
|||||
Andspyrnuhreyfingar
Andspyrnuhreyfing gyðinga · á Grikklandi · á Ítalíu · í Austurríki · í Bessarabíu · í Denmörku · í Eystrasaltslöndunum · í Eþíópíu · í Frakklandi · Í Hollandi · í Júgóslavíu · í Noregi · í Póllandi · í Slóvakíu · í Tékklandi · í Tælandi · í Úkraínu · í Víetnam · í Þýskalandi · Aðrar andspyrnuhreyfingar |
|||||
Listar | |||||
Flokkur · viðfangsefni |