Hundur í óskilum
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hundur í óskilum er íslensk hljómsveit skipuð þeim Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki G. Stephensen.
Hljómsveitin, sem er ættuð úr Svarfaðardal, leikur á fjölda óvenjulegra hljóðfæra og spilar einkum lög annarra tónistarmanna í spaugilegum útsetningum. Hafa þeir félagar, sem báðir eru kennaramenntaðir, haldið fjölda tónleika og verið iðnir við að kynna grunnskólabörnum fyrir hinum fjölbreyttu hliðum tónlistar. Hljómsveitin gaf út plötu árið 2002 sem hét Hundur í óskilum, og er hún uppseld. Útgáfutónleikar voru haldnir á á Dómó í Reykjavík þann 15. nóvember og á Græna hattinum á Akureyri þann 29. nóvember. Seinni plata þeirra félaga nefndist Hundur í óskilum snýr aftur og kom hún út árið 2007. Hún var tekin upp á Græna hattinum í maí sama ár.