Innvígður og innmúraður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lagt hefur verið til að þessari síðu/skrá verði eytt af eftirfarandi ástæðu: greinin er um lýsingarorð sem hafa verið notuð af fjölmiðlafólki í tengslum við einstakt mál. Passar ekki við reglu wikipedia m.a. um engar frumrannsóknir eða eigin kenningar. Ef þú ert andvíg(ur) eyðingu síðunnar, vinsamlegast láttu vita á spjallsíðunni og taktu fram hvers vegna. |
Innvígður og innmúraður er orðatiltæki, gjarnan notað um þann eða þá sem þykir vera í sterkum tengslum við valdamenn og þessvegna í sérstakri aðstöðu til þess að hafa áhrif á gang mála eða til þess að fá vilja sínum framgengt.
Orðatiltækið verður til í tengslum við upphaf svokallaðs Baugsmáls, þegar Jónína Benediktsdóttir, á árinu 2002, aðstoðar vin sinn Jón Gerald Sullenberger við að finna lögfræðing á Íslandi til aðstoðar við að fara með mál tengdum Baugi til Rannsóknarlögreglunnar. Jónína snéri sér til Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, sem gefur Jóni Steinari Gunnlaugssyni meðmæli með orðunum „hann er innmúraður og innvígður“. Það er almennt álitið að þar hafi Styrmir verið að vísa til vináttu Jóns Steinars við formann Sjálfstæðisflokksins og þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson.