Jóhanna Sigurðardóttir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jóhanna Sigurðardóttir (JóhS) | |
Fæðingardagur: | 4. október 1942 (65 ára) |
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður | |
Flokkur: | Samfylkingin |
Þingsetutímabil | |
1978-1980 | í Landsk. fyrir Alþfl. ✽ |
1980-1988 | í Landsk. fyrir Alþfl. |
1988-1994 | í Reykv. fyrir Alþfl. ✽ |
1994-1995 | í Reykv. fyrir Ufl. |
1995-1999* | í Reykv. fyrir Þjóðv. |
1999-2003 | í Reykv. fyrir Samf. |
2003-2007 | í Reykv. s. fyrir Samf. |
2007- | í Reykv. n. fyrir Samf. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1979 | 2. varaforseti neðri deildar |
1983-1984 | 1. varaforseti neðri deildar |
2003-2007 | 4. varaforseti Alþingis |
1987-1994 | Félagsmálaráðherra |
2007- | Félagsmálaráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða | |
*Seinni hluta kjörtímabilsins tilheyrði hún þingflokki jafnaðarmanna. |
Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður fæddist í Reykjavík 4. október 1942. Hún er þingmaður Samfylkingarinnar og félagsmálaráðherra. Foreldrar hennar voru Sigurður Egill Ingimundarson alþingismaður og forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins og Karítas Guðmundsdóttir húsmóðir. Sambýliskona Jóhönnu er Jónína Leósdóttir.
Jóhanna starfaði sem flugfreyja hjá Loftleiðum og skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971-1978. Hún hefur setið á Alþingi frá 1978 fyrir Alþýðuflokkinn, Þjóðvaka og síðast Samfylkinguna frá 1999. Jóhanna var félagsmálaráðherra 1987-1994, og svo aftur frá 2007. Hún var varaformaður Alþýðuflokksins 1984-1993 og formaður Þjóðvaka 1995 allt til þess er sá flokkur hætti að starfa.
Fyrirrennari: Magnús Stefánsson |
|
Eftirmaður: enn í embætti |
|||
Fyrirrennari: Alexander Stefánsson |
|
Eftirmaður: Guðmundur Árni Stefánsson |