Reykjavíkurkjördæmi norður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þingmenn -kjördæmakjörnir -jöfnunarmenn |
11 9 2 |
|
Mannfjöldi | 117.800 (í Reykjavík allri) | |
Sveitarfélög | 1 | |
Kosningar | 2003 | 2007 |
Kjósendur á kjörskrá | 42.812 | 43.775 |
Fjöldi á bakvið hvert þingsæti | 3.892 | 3.979 |
Kjörsókn | 85,5% | 81,4% |
Reykjavíkurkjördæmi norður er eitt af kjördæmum Íslands. Það hefur 11 sæti á Alþingi, þar af tvö jöfnunarsæti. Landskjörstjórn skiptir Reykjavíkurborg niður í tvö kjördæmi og miðar þar við þjóðskrá fimm vikum fyrir kjördag, reynt er að gæta þess að álíka margir búi í hvoru kjördæmi og að þau myndi sem samfelldasta heild. Reykjavík hefur hingað til verið skipt upp í norður og suðurkjördæmi og mörkin liggja í grófum dráttum meðfram Vesturlandsvegi, Miklubraut og Hringbraut. Í kosningunum 2003 voru mörkin látin fylgja Suðurlandsvegi frá gatnamótunum við Vesturlandsveg þannig að Grafarholt lenti í norðurkjördæminu en fyrir kosningarnar 2007 voru mörkin látin liggja um mitt hverfið þannig að það skiptist á milli suður- og norðurkjördæmanna.
Kjördæmið var búið til með nýrri kjördæmaskipan árið 2000. Fyrst var kosið samkvæmt þessari skipan í Alþingiskosningum 2003. Fjöldi kjósenda á kjörskrá á hvert þingsæti var 3.892 í kosningunum 2003.
[breyta] Skipting þingsæta og þingmenn
Þing | 1. þingm. | Fl. | 2. þingm. | Fl. | 3. þingm. | Fl. | 4. þingm. | Fl. | 5. þingm. | Fl. | 6. þingm. | Fl. | 7. þingm. | Fl. | 8. þingm. | Fl. | 9. þingm. | Fl. | 10. þingm. | Fl. | 11. þingm. | Fl. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
129. | Össur Skarphéðinsson | S | Davíð Oddsson | D | Bryndís Hlöðversdóttir | S | Björn Bjarnason | D | Guðrún Ögmundsdóttir | S | Guðlaugur Þór Þórðarson | D | Halldór Ásgrímsson | B | Kolbrún Halldórsdóttir | V | Helgi Hjörvar | S | Sigurður Kári Kristjánsson | D | Árni Magnússon* | B |
130. | ||||||||||||||||||||||
131. | ||||||||||||||||||||||
132. | Björn Bjarnason | Guðrún Ögmundsdóttir | Guðlaugur Þór Þórðarson | Helgi Hjörvar | Sigurður Kári Kristjánsson | Ingibjörg Sólrún Gísladóttir | Ásta Möller | Guðjón Ólafur Jónsson* | ||||||||||||||
133. | Guðjón Ólafur Jónsson | Sæunn Stefánsdóttir | ||||||||||||||||||||
134. | Guðlaugur Þór Þórðarson | D | Össur Skarphéðinsson | S | Guðfinna Bjarnadóttir | D | Katrín Jakobsdóttir | V | Jóhanna Sigurðardóttir | Pétur Blöndal | D | Helgi Hjörvar | S | Sigurður Kári Kristjánsson | D | Árni Þór Sigurðsson | V | Steinunn Valdís Óskarsdóttir | S | Ellert B. Schram | S |
[breyta] Tengill
Frá 2003:
Reykjavíkurkjördæmi norður · Reykjavíkurkjördæmi suður · Norðvesturkjördæmi · Norðausturkjördæmi · Suðurkjördæmi · Suðvesturkjördæmi
1959-2003:
Reykjavík · Reykjanes · Vesturland · Vestfirðir · Norðurland vestra · Norðurland eystra · Austurland · Suðurland
1844-1959:
Akureyri · Austur-Húnavatnssýsla · Austur-Skaftafellssýsla · Árnessýsla · Barðastrandarsýsla · Borgarfjarðarsýsla · Dalasýsla · Eyjafjarðarsýsla · Gullbringu- og Kjósarsýsla · Hafnarfjörður · Húnavatnssýsla · Ísafjörður · Ísafjarðarsýsla · Mýrasýsla · Norður-Ísafjarðarsýsla · Norður-Múlasýsla · Norður-Þingeyjarsýsla · Rangárvallasýsla · Reykjavík · Skaftafellssýsla · Seyðisfjörður · Siglufjörður · Skagafjarðarsýsla · Suður-Múlasýsla · Snæfellsnessýsla · Strandasýsla · Suður-Þingeyjarsýsla · Vestur-Húnavatnssýsla · Vestur-Ísafjarðarsýsla · Vestmannaeyjar · Vestur-Skaftafellssýsla · Þingeyjarsýsla