Jón Gerreksson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jón Gerreksson: (1378? - 1433) var danskur biskup í Skálholti frá 1426. Jón var erkibiskup í Svíþjóð en 1422 páfi dæmdi hann óhæfan til æðri klerkþjónustu. Hann fékk uppreisn æru 1426 og var veitt Skálholtsbiskupsdæmi sama ár en kom ekki til Íslands fyrr en 1430 og hafði sveinalið með sér. Jón átti að stemma stigu við verslun Englendinga á Íslandi og styrkja konungsvaldið. Árið 1433 veittu höfðingjar úr Eyjafirði og Skagafirði honum aðför í Skálholti, drápu sveina hans sem í náðist, settu Jón í poka og drekktu honum í Brúará.