Jonee Jonee
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jonee Jonee var íslensk pönk/síðpönkhljómsveit sem var upprunnin í Garðabæ. Hljómsveitin hafði töluverða sérstöðu í tónlistarflóru þess tíma vegna hljóðfæraskipanar þar sem aðeins var leikið á bassa og trommur.
Jonee Jonee var stofnuð af Einari Kr. Pálssyni, Þorvari Hafsteinssyni og Bergsteini Björgúlfssyni. Hljómsveitin starfaði á árunum frá 1980 til 1982. Einar sagði snemma skilið við hljómsveitina, en Heimir Barðason kom í hans stað. Hljómsveitin var mjög virk á þessu tímabili og gaf út eina breiðskífu, Svonatorrek, sem Grammið gaf út árið 1982.
Jonee Jonee kom fram í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík og léku þar lögin „Af því að pabbi vildi það“ og „Hver er svo sekur?“. 1984 kom síðan út smáskífan Blár Azzurro. Árið 1991 var tekið upp nýtt efni með Jonee Jonee ásamt elstu lögunum, en var aldrei gefin út. Þessar upptökur eru enn óútgefnar.
Hljómsveitina skipuðu:
- Þorvar Hafsteinsson (söngur og saxófónn)
- Heimir Barðason (bassar) (sem tók við af Einari Kr. Pálssyni)
- Bergsteinn Björgúlfsson (trommur)