Kennaraháskóli Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stofnaður: | 1907 |
Gerð: | Ríkisháskóli |
Rektor: | Ólafur Proppé |
Nemendafjöldi: | 2.300 |
Staðsetning: | Reykjavík, Ísland |
Vefsíða |
Kennaraháskóli Íslands er háskóli fyrir kennaramenntun á Íslandi. Hann mun sameinast Háskóla Íslands 1. júlí 2008 og þá er áætlað að hann verði þá 12 deildinn innan Háskóla Íslands. Skólinn menntar fyrst og fremst stéttir sem starfa við kennslu og umönnunarstörf og rannsóknir. Nemendur skólans eru um 2300 á B.A., B.Ed. og B.S. sviði en einnig er hægt að stunda við skólann diplómunám og framhaldsnám til M.A. og doktorsprófs.
Efnisyfirlit |
[breyta] Fjarnám og upplýsingatækni
Kennaraháskólinn hefur lagt áherslu á fjarnám og nám sem notar ýmsa tæknimiðla. Rúmlega helmingur nemenda skólans stundar fjarnám.
[breyta] Saga
Kennaraskóli Íslands var stofnaður með lögum árið 1907 en kennslan hófst haustið 1908 í nýreistu húsi að Laufásvegi 81. Það hús er kallað Gamli kennaraskólinn og er nú friðað. Kennaramenntun á Íslandi hófst í Flensborgarskóla í Hafnarfirði árið 1892, fyrst sem stutt námskeið og síðar sem viðbótarbekkur við gagnfræðaskóla. Kennaraskólinn var í fyrstu þriggja ára skóli en var lengdur í fjögur ár árið 1943. Við skólann var starfrækt æfingadeild fyrir æfingakennslu kennaranema. Frá árinu 1947 voru inntökuskilyrði í kennaranám landspróf og gagnfræðapróf en fram að þeim tíma var algengt að nemendur kæmu í skólann eftir eitt eða tvö ár í héraðsskóla, gagnfræðaskóla eða öðrum framhaldsskólum. Auk þess mátti ljúka kennaranámi á einu ári eftir stúdentspróf og var það gert í sérstakri stúdentsdeild.
Fyrsti áfangi nýbyggingar Kennaraháskólans við Stakkahlíð var tekinn í notkun árið 1962. Á lóð skólans var reistur barnaskóli sem tók við hlutverki æfingadeildarinnar. Hann hét áður Æfinga- og tilraunaskóli Kennaraháskóla Íslands en heitir nú Háteigsskóli og er einn af grunnskólum Reykjavíkur án sérstakra tengsla við Kennaraháskólann. Eftir 1990 hefur vaxandi áhersla verið lögð á framhaldsnám og útskrifuðust fyrstu nemendurnir með M.Ed. gráðu árið 1996.
Nýjar námsbrautir bættust við þegar Kennaraháskólinn, Fósturskólinn, Íþróttakennaraskólinn og Þroskaþjálfaskólinn voru sameinaðir í ársbyrjun 1998. Nú fara fram viðræður um mögulega sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands.
[breyta] Húsakynni
Aðalbygging Kennaraháskólans er við Stakkahlíð. Þar var tekin í notkun nýbyggingin Hamar árið 2002. Kennsla í list- og verkgreinum fer fram í Listgreinahúsi skólans í Skipholti 37. Skrifstofur margra kennara og stofnana innan skólans eru í Skipholti og Bolholti. Íþróttanám fer fram í Íþróttafræðasetri skólans á Laugarvatni.
[breyta] Heimildir
- Lög um sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands
- Vefsetur Kennaraháskóla Íslands
- Saga Kennaraháskóla Íslands, höf. Helgi Skúli Kjartansson. Skoðað 23. mars, 2006.
[breyta] Tenglar
Íslenskir háskólar |
---|
Háskóli Íslands | Háskólinn á Akureyri | Háskólinn á Bifröst | Háskólinn í Reykjavík | Hólaskóli | Kennaraháskóli Íslands | Landbúnaðarháskóli Íslands | Listaháskóli Íslands |