Mílanó
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mílanó eða Meilansborg (ítalska: Milano) er önnur stærsta borg Ítalíu, með um 1,3 milljónir íbúa í hinu eiginlega sveitarfélagi en 7,4 milljónir í hinni eiginlegu borg. Hún er höfuðstaður samnefndrar sýslu og héraðsins Langbarðalands. Hún er gjarnan kölluð efnahagsleg höfuðborg landsins og kauphöll Ítalíu er staðsett þar. Sagan segir að borgin hafi verið stofnuð af gallverskum ættflokki um 600 f.Kr.. Rómverjar nefndu hana Mediolanum eftir 200 f.Kr..