Mjólk
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mjólk er næringarríkur vökvi sem kvenkyns spendýr framleiða í mjólkurkirtlum og sem ungviði kemst að með því að sjúga spena móður sinnar. Undantekning frá þessu eru nefdýr sem eru án spena, en seytla þess í stað mjólkinni út úr holum á kvið sér.
Mjólk inniheldur töluverða fitu (mjólkurfitu) og laktósa, auk ýmissa vítamína og hormóna sem ungviðið þarfnast til að dafna.
[breyta] Mannamjólk
Mennskar mæður gefa börnum sínum mjólk fyrstu mánuðina frá fæðingu, jafnvel lengur en tvö ár í sumum tilfellum, en oftast er skipt yfir í sérstaka barnamjólk í áföngum eða hún notuð samhliða móðurmjólkinni. Á endanum er barnið fært um að drekka „venjulega mjólk“ úr búðum, þ.e. kúamjólk. Á Íslandi er mjög algengt að fólk drekki mjólk fram eftir aldri, en víða annars staðar er það ekki venjan, og fólk jafnvel missir getuna til að brjóta niður laktósann í mjólkinni með aldrinum, þetta nefnist mjólkuróþol. Sumt fólk þjáist af mjólkurofnæmi.
[breyta] Mjólkurafurðir
Stærsti mjólkurframleiðandi á Íslandi er Mjólkursamsalan í Reykjavík.