Modibo Sidibé
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Modibo Sidibé (f. 7. nóvember 1952) er forsætisráðherra Malí síðan í september 2007. Hann var áður lögregluforingi en var ráðuneytisstjóri undir ýmsum ráðherrum frá 1986 þar til hann varð heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Alpha Oumar Konaré 1993. Hann varð utanríkisráðherra árið 1997 og síðan forsetaritari (með stöðu ráðherra) þegar Amadou Toumani Touré var kjörinn forseti 2002. Touré skipaði hann forsætisráðherra 2007.