ON AMAZON:



https://www.amazon.com/Voice-Desert-Valerio-Stefano-ebook/dp/B0CJLZ2QY5/



https://www.amazon.it/dp/B0CT9YL557

We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Malí - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Malí

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

République du Mali
Fáni Malí Skjaldarmerki Malí
(Fáni Malí) (Skjaldarmerki Malí)
Kjörorð: Un peuple, un but, une foi
franska: Ein þjóð, eitt markmið, ein trú
Þjóðsöngur: Pour l'Afrique et pour toi, Mali (Fyrir Afríku og fyrir þig, Malí)
Kort sem sýnir staðsetningu Malí
Höfuðborg Bamakó
Opinbert tungumál franska (opinbert), bambara, önnur
Stjórnarfar Lýðveldi
Amadou Toumani Touré
Modibo Sidibé

Sjálfstæði

Frá Frakklandi 

 - Viðurkennt 22. september, 1960 

Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)

23. sæti
1.240.000 km²
1,6%
Mannfjöldi
 • Samtals (2002)
 • Þéttleiki byggðar
68. sæti
11.340.480
10,9/km²
VLF (KMJ)
 • Samtals
 • á mann
áætl. 2005
14.400.000 millj. dala (125. sæti)
1.154 dalir (166. sæti)
VÞL 0.380 (173. sæti)
Gjaldmiðill CFA-franki
Tímabelti UTC
Þjóðarlén .ml
Landsnúmer +223
Kort af Malí
Kort af Malí

Lýðveldið Malí (franska: République du Mali) er landlukt land í Vestur-Afríku og annað stærsta Vestur-Afríkulandið. Malí á landamæriNíger til austurs, Búrkína Fasó og Fílabeinsströndinni til suðurs, Gíneu til suðausturs, og Senegal og Máritaníu til vesturs. Í norður teygir landið sig inn í Sahara-eyðimörkina þar sem það mætir syðri landamærum Alsír. Flestir íbúanna búa í suðurhluta landsins, þar sem renna árnar Senegalfljót og Nígerfljót. Í norðurhlutanum er hin goðsagnakennda borg Timbúktú.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga

Mandéfólk settist að í Sahelsvæðinu við jaðar Sahara á miðöldum og þar urðu til nokkur stórveldi s.s. Ganaveldið, Malíveldið og Songhæveldið. Lykilþáttur í myndun þessara ríkja var Saharaverslunin með gull, salt og þræla og Timbúktú var lykiláfangastaður á verslunarleiðunum um Vestur-Sahara og miðstöð kóransfræða. Borginni hnignaði með hnignun verslunarinnar, einkum eftir innrás frá Marokkó árið 1591 og á eftir fylgdi röð konungsríkja sem ekkert varð þó jafnstórt og Songhæveldið hafði verið.

Frakkar sóttu inn á þetta svæði eftir 1880 og svæðið var lagt undir Franska Súdan eftir nokkra andspyrnu árið 1898 og stjórnað (mest óbeint með því að nýta þær valdastofnanir sem fyrir voru) sem hluta af Frönsku Vestur-Afríku.

Með samþykkt nýrra grunnlaga í Frakklandi fékk svæðisþingið völd til að mynda ríkisstjórn með framkvæmdavald í þeim málum sem heyrðu undir þingið árið 1956. Full heimastjórn gekk í gildi 25. nóvember 1958. 4. apríl 1959 myndaði Franska Súdan Malísambandið ásamt Senegal og fékk fullt sjálfstæði 20. júní 1960. 20. ágúst sama ár klauf Senegal sig úr sambandinu. 22. september lýsti Franska Súdan yfir stofnun Lýðveldisins Malí og sagði sig úr Franska samveldinu.

Stærsti stjórnmálaflokkur Frönsku Súdan var Union Soudanaise du Rassemblement Democratique Africain. Þegar landið fékk sjálfstæði gerði forsetinn Modibo Keita stjórn landsins að flokksræði og hóf að þjóðnýta lykiliðngreinar í sósíalískum anda og tók upp náin stjórnmálatengsl við Austurblokkina, en efnahagsleg hnignun sem fylgdi í kjölfarið fékk stjórnina til að taka aftur upp CFA-franka og draga úr miðstýringu árið 1967.

19. nóvember var gerð herforingjabylting og við stjórn landsins tók herforingjaráð undir stjórn Moussa Traore. Herforingjastjórnin reyndi að koma á efnahagslegum umbótum en tókst illa upp vegna innanlandsátaka og þurrka. Ný stjórnarskrá gekk í gildi 1974 sem kvað á um flokksræði og borgaralega ríkisstjórn en herforingjarnir sátu samt áfram við völd. Þegar forsetakosningar voru haldnar árið 1979 fékk Moussa Traore 99% atkvæða. 1980 braut ríkisstjórnin á bak aftur stúdentamótmæli og þrjár tilraunir til valdaráns.

1985 kom til stuttrar styrjaldar við Búrkína Fasó út af Agacher-ræmunni. Á 9. áratugnum hóf ríkisstjórnin röð af efnahagslegum umbótum í samstarfi við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn en þær aðgerðir ollu óánægju meðal almennings sem þurfti að þola neikvæðar afleiðingar þeirra. Ríkisstjórn Traores reyndi að bregðast við með því að auka stjórnmálalegt frjálsræði án þess að hverfa frá flokksræði en óánægjan fór áfram vaxandi og 1990 mynduðust stjórnarandstöðuhreyfingar. Fjölgun túarega í norðurhlutanum jók enn á spennuna. Ótti við að stuðningur myndaðist við aðskilnaðarhreyfingu túarega í norðrinu leiddi til þess að stjórnin barði niður öll merki um andspyrnu í norðrinu. Formlegur friðarsamningur var undirritaður 1991 en átök héldu samt áfram.

Kröfur um aukið lýðræði leiddu til frekari óeirða og 26. mars 1991, eftir fjögurra daga mótmæli, handtók hópur herforingja, undir stjórn Amadou Toumani Touré, Traore forseta og ógilti stjórnarskrána. Mynduð var borgaraleg nefnd sem skipaði borgaralega ríkisstjórn. Drög að nýrri stjórnarskrá voru samin sem gerðu ráð fyrir fjölflokkakerfi. Í janúar og febrúar 1992 voru haldnar kosningar til þings, forseta og sveitarstjórna. Alpha Oumar Konaré var kjörinn forseti. Í þingkosningum 1997 vann flokkur hans 80% þingsæta. Í forsetakosningunum 2002 gat Konaré ekki boðið fram þar sem hann hafði setið tvö kjörtímabil og eftir klofning innan flokks hans vann Touré forsetakosningarnar sem óháður frambjóðandi.

[breyta] Landafræði

Malí er 24. stærsta land heims. Það er því ámóta stórt og Suður-Afríka og tólf sinnum stærra en Ísland. Það er landlukt og loftslag er heittemprað og þurrt.

Landslag í Malí er að mestu flatt norðurhlutinn, sem tilheyrir Saharaeyðimörkinni, er hæðóttur og hulinn sandi. Í suðurhlutanum eru gresjur umhverfis Nígerfljótið. Sandsteinsklettarnir Adrar des Ifoghas eru í norðausturhlutanum. Mestur hluti landsins er í Saharaeyðimörkinni þar sem þurr og rykmettaður vindur myndast á þurrkatímanum.

Malí býr yfir þó nokkrum náttúruauðlindum og þar fer fram vinnsla á gulli, úrani, fosfötum, kaólíníti, salti og kalki.

[breyta] Skipting í stjórnsýsluumdæmi

Malí skiptist í átta héruð (régions) og eitt umdæmi (district), 49 sýslur (cercle) og 288 löggæsluumdæmi (arrondissements).

Héruðin og umdæmið eru:

  • Gao
  • Kayes
  • Kidal
  • Koulikoro
  • Mopti
  • Ségou
  • Sikasso
  • Tombouctou
  • Bamako (höfuðborgarumdæmi)

[breyta] Stjórnmál

Amadou Toumani Toure, forseti Malí, heldur ræðu í Washington árið 2003.
Amadou Toumani Toure, forseti Malí, heldur ræðu í Washington árið 2003.

Malí er lýðveldi með fjölflokkakerfi og forsetaræði þar sem forseti Malí er bæði þjóðhöfðingi og höfuð ríkisstjórnarinnar. Núverandi stjórnarskrá landsins er frá 1992 og kveður á um að forsetinn, sem kjörinn er til fimm ára í senn, geti eingöngu setið í tvö kjörtímabil samfleytt.

Á þinginu (Assemblée Nationale) sitja 160 fulltrúar sem kjörnir eru til fimm ára í senn; 147 kjörnir í einmenningskjördæmum og 13 fulltrúar kjörnir af malískum ríkisborgurum erlendis. Átta flokkar eiga fulltrúa á þingi. Þeir stærstu eru Alliance pour la Démocratie en Mali-Parti Pan-Africain pour la Liberté, la Solidarité et la Justice með 53 fulltrúa og Rassemblement pour le Mali með 46 fulltrúa. Báðir þessir flokkar eru aðilar að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna.

[breyta] Efnahagslíf

Klettasalt frá Timbúktú var eitt sinn undirstaða Malíveldisins.
Klettasalt frá Timbúktú var eitt sinn undirstaða Malíveldisins.

Malí er eitt af fátækustu löndum heims. 65% af landsvæðinu er eyðimörk eða eyðimerkurjaðar og nokkur langvarandi þurrkatímabil hafa gengið þar yfir á 20. öld. Landbúnaður er að mestu bundinn við svæðið umhverfis Nígerfljót. Um 10% þjóðarinnar eru hirðingjar en 80% lifa af landbúnaði og fiskveiðum. Iðnaður byggist að mestu á vinnslu landbúnaðarafurða. Helstu útflutningsvörur landsins eru baðmull og kvikfjárafurðir en námavinnsla fer ört vaxandi.

Efnahagslíf Malí er afar viðkvæmt fyrir verðsveiflum á baðmullarmörkuðum og landið er mjög háð erlendri fjárhagsaðstoð sem árið 1995 var tæpar 600 milljónir bandaríkjadala. Erlendar skuldir landins árið 1998 voru 3,1 milljarður bandaríkjadala.

Árið 1982 hóf landið röð efnahagsumbóta sem skiluðu miklum árangri í byrjun en síðan hægði á þeim og landið þurfti á mikilli fjárhagsaðstoð að halda 1987 til að koma í veg fyrir hrun. Í kjölfar samninga við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabankann 1988 hefur ríkisstjórn Malí einfaldað rekstrarumhverfi fyrirtækja og aflétt verðstjórnun í nokkrum skrefum. Um leið var hafist handa við einkavæðingu ríkisfyrirtækja.

[breyta] Menning

Efnissalar í Timbúktú.
Efnissalar í Timbúktú.

Um helmingur íbúa Malí eru mandéfólk. Túaregar í norðurhlutanum eru um einn tíundi hluti íbúafjöldans. Um 90% íbúanna eru súnnímúslimar. Frönskulæsi er ekki mjög útbreidd og bundin við þéttbýlið. Margir íbúa eru þó læsir á N'Ko sem er stafróf útbreiddasta Afríkumálsins, bambara, eða arabísku.

Margir íbúa Malí hafa numið í kóranskóla á borð við Sankoreháskóla í Timbúktú, sem er einn af elstu háskólum heims.

Tónlistarmaðurinn Salif Keïta og söngkonan Déné Issébéré eru frá Malí.

Commons
Wikimedia Commons hefur upp á að bjóða margmiðlunarefni tengt:

Static Wikipedia 2008 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Static Wikipedia 2007 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Static Wikipedia 2006 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Sub-domains

CDRoms - Magnatune - Librivox - Liber Liber - Encyclopaedia Britannica - Project Gutenberg - Wikipedia 2008 - Wikipedia 2007 - Wikipedia 2006 -

Other Domains

https://www.classicistranieri.it - https://www.ebooksgratis.com - https://www.gutenbergaustralia.com - https://www.englishwikipedia.com - https://www.wikipediazim.com - https://www.wikisourcezim.com - https://www.projectgutenberg.net - https://www.projectgutenberg.es - https://www.radioascolto.com - https://www.debitoformtivo.it - https://www.wikipediaforschools.org - https://www.projectgutenbergzim.com