Prótagóras
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestræn heimspeki Fornaldarheimspeki |
|
---|---|
Nafn: | Prótagóras |
Fædd/ur: | 490 f.Kr. |
Dáin/n: | 420 f.Kr. |
Skóli/hefð: | Sófismi |
Helstu ritverk: | Sannleikurinn |
Helstu viðfangsefni: | Siðfræði, mælskufræði |
Markverðar hugmyndir: | Afstæðishyggja: maðurinn er mælikvarði allra hluta; veikt trúleysi |
Áhrifavaldar: | Demókrítos |
Hafði áhrif á: | Pródíkos, Platon |
Prótagóras (forngríska: Πρωταγόρας) (490–420 f.Kr.) frá Abderu var forngrískur fræðari og heimspekingur. Í samræðunni Prótagóras eignar Platon honum að hafa fyrsti atvinnufræðarinn og dygðarkennari.
Prótagóras virðist hafa verið afstæðishyggjumaður en frægastur er hann fyrir að hafa haldið því fram að „maðurinn [sé] mælikvarði allra hluta, þeirra sem eru að þeir séu og þeirra sem eru ekki að þeir séu ekki“.[1]
Prótagóras var einnig efasemdamaður. Í ritgerð sinni Um guðina, sem er ekki varðveitt, skrifaði hann: „Varðandi guðina hef ég enga leið til þess að vita hvort þeir eru til eða ekki eða hvernig þeir eru, vegna þess hve óljóst málið er og hve lífið er stutt.“[2]
[breyta] Tilvísanir
- ↑ Platon, Þeætetos 152A, sbr. Sextos Empeirikos, AM VII.60.
- ↑ DK 80B4.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Tengill
Forverar Sókratesar |
Míletosmenn : Þales · Anaxímandros · Anaxímenes Pýþagóringar : Pýþagóras · Alkmajon frá Króton · Fílolás · Arkýtas Efesosmenn : Herakleitos — Eleumenn : Xenofanes · Parmenídes · Zenon frá Eleu · Melissos Fjölhyggjan : Anaxagóras · Empedókles — Eindahyggjan : Levkippos · Demókrítos Fræðarar : Prótagóras · Pródíkos · Hippías · Krítías · Þrasýmakkos Díogenes frá Apolloníu |