Súra
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Súra (سورة sūrah) er arabíska hugtakið fyrir kafla í Kóraninum. Súrurnar eru 114 að tölu, þær skiftast í 6236 ayat (vers). Múslimar nefna þær yfirleitt ekki eftir raðtölu eins og gert er í Biblíunni heldur eftir arabísku nafni sem dregið er á einhvern hátt frá viðkomandi súru.