Arabíska
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Arabíska عربية Arabiyya |
||
---|---|---|
Málsvæði: | Alsír, Barein, Egyptaland, Írak, Jemen, Jórdanía, Katar, Kúveit, Líbanon, Líbýa, Máritanía, Marokkó, Óman, Palestínuríki, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádí-Arabía, Súdan, Sýrland og Túnis af meirihluta, og töluð í mörgum löndum til viðbótar af minnihluta íbúa. | |
Heimshluti: | Miðausturlönd, Norður-Afríka | |
Fjöldi málhafa: | 225 milljónir | |
Sæti: | 6 (miðað við móðurmál) | |
Ætt: | Afró-asísk Semísk |
|
Stafróf: | Arabískt stafróf | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál: | Alsír Barein Alþjóðastofnanir: |
|
Stýrt af: | Egyptaland: Arabískuakademían Sýrland: Arabískuakademían í Damaskus |
|
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1: | ar | |
ISO 639-2: | ara | |
SIL: | ABV | |
Tungumál – Listi yfir tungumál | ||
Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Arabíska er semískt tungumál sem er upprunið á Arabíuskaganum, en breiddist yfir stærra svæði með útbreiðslu Íslam og er nú talað víðasthvar alla leið frá Marokkó til Íraks. Arabíska er eitt helsta sameiningartákn þeirra sem í dag kalla sig Araba sem eru mun fleiri en þeir sem búa á Arabíuskaganum. Arabíska má skipta í tvennt, bókmenntaarabísku og talaða arabísku. Sú fyrrnefnda er notuð í formlegu máli, af flestum fjölmiðlum og í bókum því sem næst alls staðar þar sem arabíska er töluð og er sú arabíska sem Kóraninn notar. Síðarnefnda gerðin er hins vegar ekki ein gerð heldur hinar ýmsu mállýskur sem talaðar eru þvert yfir svæðið. Þær eru mjög misjafnar og skiljast jafnvel ekki af þeim sem tala aðrar mállýskur.
Efnisyfirlit |
[breyta] Stafróf
Arabíska er skrifuð með arabíska stafrófinu, t.d. er arabíska skrifað svona á arabísku: عربية.
[breyta] Tölur
Þeir tölustafir (0 1 2 3 4 5 6 7 8 9) og það talnakerfi sem nú er notað um allan heim kom til Evrópu í gegnum arabísku og eru tölurnar því gjarnan kallaðar arabískar tölur en í reynd eru þær upprunnar frá Indlandi og í arabísku eru tölurnar einmitt kallaðar „indverskar tölur“. Arabíska er rituð frá hægri til vinstri líkt og hebreska og hindí, en tölur eru aftur á móti ritaðar frá vinstri til hægri.
[breyta] Arabískar Tölur
۱ - 1
۲ - 2
۳ - 3
۴ - 4
۵ - 5
۶ - 6
۷ - 7
۸ - 8
۹ - 9
۱۰ - 10