Sighvatur Þórðarson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sighvatur Þórðarson (995 - ????) var íslenskt skáld. Hann var fóstraður við Apavatn, og er sagður hafa fengið skáldíþrótt sína úr fiskhöfði. Sighvatur gerðist hirðskáld og höfuðskáld Ólafs konungs Haraldssonar. Um Sighvat er það sagt að hann var ekki hraðmæltur maður í sundurlausum orðum, en skáldskapur var honum svo tiltækur, að hann mælti af tungu fram svo sem annað mál. Sighvatur samdi t.d. Bersöglisvísur.