Óskarsverðlaunin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Óskarsverðlaunin eru veitt kvikmyndagerðarmönnum og öðrum sem starfa við kvikmyndir. Verðlaunahátíðin er yfirleitt sú best kynnta og mest áberandi á Vesturlöndum, og verðlaunin af flestum talin þau eftirsóknarverðustu.
Óskarsverðlaunin eru veitt af Bandarísku kvikmyndaakademíunni (Academy of Motion Picture Arts and Sciences), samtökum fólks sem starfar við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum og er aðild að þeim einungis veitt í heiðursskyni.
Árið 2003 voru 5816 meðlimir í akademíunni með kosningarétt við val á Óskarsverðlaunahöfum.
Óskarsverðlaunin voru veitt í 78. sinn árið 2006, en þau hafa verið veitt árlega frá því þau voru veitt fyrst þann 16. maí 1929.