Þórólfur Árnason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þórólfur Árnason var borgarstjóri Reykjavíkur frá 1. febrúar 2003 til 1. desember 2004. Þórólfur sagði af sér í kjölfar umræðunnar um samráð olíufélaganna, en hann hafði verið framkvæmdastjóri hjá Essó nokkrum árum áður. Þórólfur var einnig fyrsti forstjóri Tals og forstjóri Icelandic Group. Þórólfur var valinn markaðsmaður ársins árið 2002. Hann hefur verið forstjóri Skýrr frá árinu 2006.
Foreldrar Þórólfs eru Sr. Árni Pálsson og Rósa Björk Þorbjarnardóttir. Systkini Þórólfs eru Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur á Borg á Mýrum, Anna Katrín Árnadóttir spænskukennari og Árni Páll Árnason lögmaður. Þórólfur er kvæntur Margréti Baldursdóttur og eiga þau saman börnin Baldur Þórólfsson (f. 1985) og Rósu Björk Þórólfsdóttur (f. 1988).
Fyrirrennari: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir |
|
Eftirmaður: Steinunn Valdís Óskarsdóttir |