Borgarstjóri Reykjavíkur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Í bæjarstjórnarlögum fyrir Reykjavík sem sett voru árið 1907 var í fyrsta sinn kveðið á um embætti borgarstjóra. Embættið var auglýst árið 1908 og sóttu tveir um stöðuna, þeir Páll Einarsson og Knud Zimsen. Páll var ráðinn til sex ára en að þeim tíma loknum ákvað hann að hætta störfum og Knud Zimsen tók við embættinu. Hann hélt því til ársins 1932.
Eftirtaldir hafa gegnt embætti borgarstjóra í Reykjavík:
Páll Einarsson | 1908–1914 |
Knud Zimsen | 1914–1932 |
Jón Þorláksson | 1932–1935 |
Pétur Halldórsson | 1935–1940 |
Bjarni Benediktsson | 1940-1947 |
Gunnar Thoroddsen | 1947-1960 |
Auður Auðuns og Geir Hallgrímsson | 1959-1960 |
Geir Hallgrímsson | 1960-1972 |
Birgir Ísleifur Gunnarsson | 1972-1978 |
Egill Skúli Ingibergsson | 1978-1982 |
Davíð Oddsson | 1982-1991 |
Markús Örn Antonsson | 1991-1994 |
Árni Sigfússon | 1994 |
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir | 1994-2003 |
Þórólfur Árnason | 2003–2004 |
Steinunn Valdís Óskarsdóttir | 2004–2006 |
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson | 2006– |