1. desember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nóv – Desember – Jan | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | ||||||
2006 Allir dagar |
1. desember er 335. dagur ársins (336. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 30 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1878 - Fyrsti viti á Íslandi tekinn í notkun, Reykjanesviti á Valahnúk.
- 1918 - Sambandslagasamningur Íslands og Danmerkur gekk í gildi og varð Ísland þá frjálst og fullvalda ríki. Um leið féllu stöðulögin frá 1871 úr gildi. Íslenski fáninn var dreginn að húni í fyrsta sinn sem fullgildur þjóðfáni. Lítið var um hátíðahöld, og olli spánska veikin þar mestu um.
- 1931 - Minnisvarði um Hannes Hafstein var afhjúpaður við Stjórnarráðshúsið.
- 1932 - Sjálfvirkar símstöðvar voru teknar í notkun í Reykjavík og Hafnarfirði og misstu þá margir tugir símastúlkna vinnu sína.
- 1955 - Rosa Parks neitaði að standa upp fyrir hvítum manni í strætisvagni í Bandaríkjunum og var handtekin vegna þess.
- 1972 - Áhugamenn um verndun Bernhöftstorfunnar gengu blysför um miðbæ Reykjavíkur til að vekja athygli á málstað sínum.
- 1974 - Hús Jóns Sigurðssonar var formlega vígt í Kaupmannahöfn.
- 1975 - Silfurbergsnáman hjá Helgustöðum í Reyðarfirði var friðlýst sem náttúruvætti.
- 1975 - Stofnaður var fólkvangur á Reykjanesi, um 300 km2 að stærð.
- 1983 - Ríkisútvarpið hóf útsendingar á FM-bylgju sem Rás 2.
- 1986 - Bylgjan hóf að senda út stöðugt allan sólarhringinn, fyrst íslenskra útvarpsstöðva.
- 1991 - Hilmar Örn Hilmarsson hlaut Felix-verðlaunin fyrir tónlist sína í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börnum náttúrunnar.
- 1994 - Þjóðarbókhlaðan var opnuð í Reykjavík.
- 2006 - Dagur rauða nefsins haldinn í fyrsta sinn á Íslandi til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).
[breyta] Fædd
- 1766 - Nikolai Mikhailovich Karamzin, rússneskur rithöfundur (d. 1826)
- 1792 - Nikolai Ivanovich Lobachevsky, rússneskur stærðfræðingur (d. 1856)
- 1873 - Valery Bryusov, rússneskt ljóðskáld (d. 1924)
- 1886 - Rex Stout, bandarískur rithöfundur (d. 1975)
- 1895 - Henry Williamson, enskur rithöfundur (d. 1977)
- 1930 - Joachim Hoffmann, þýskur sagnfræðingur (d. 2002)
- 1932 - Matt Monro, enskur söngvari (d. 1985)
- 1935 - Woody Allen, bandarískur leikstjóri, leikari og grínisti
- 1940 - Richard Pryor, bandarískur leikari (d. 2005)
- 1944 - John Densmore, bandarískur trommuleikari (í hljómsveitinni The Doors)
- 1945 - Bette Midler, bandarísk leik- og söngkona
- 1946 - Gilbert O'Sullivan, írskur söngvari
- 1949 - Pablo Escobar, kólumbískur eiturlyfjabarón (d. 1993)
- 1961 - Jeremy Northam, enskur leikari
- 1974 - Costinha, portúgalskur knattspyrnumaður
[breyta] Dáin
- 1947 - Godfrey Harold Hardy, breskur stærðfræðingur (f. 1877).
- 1973 - David Ben-Gurion, fyrsti forsætisráðherra Ísraels (f. 1886)
- 1991 - George J. Stigler, hagfræðingur.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |