Basshunter
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Basshunter er listamannsnafn sænska tónlistarmannsins og plötusnúðsins Jonas Altbergs. Hann fæddist 1984 í bænum Halmstad í Suður-Svíþjóð.
Basshunter kallar tónlistina sína evródans eða melódískt trans, en aðrir vilja flokka þetta sem hard dance eða euro-popp. Hann byrjaði að semja tónlist árið 1999 með forritinu „Fruityloops“ og árið 2004 gaf hann út fyrstu plötuna, The Bassmaschine á internetinu.
[breyta] Boten Anna
Í apríl 2006 gerði hann útgáfusamning við Warner Music í Svíþjóð sem gaf út smáskífuna Boten Anna og lagið hans Boten Anna varð strax orðið að smelli í Skandínavíu í maí sama ár. Lagið dreifðist hratt um internetið og hefur verið þýtt á mörg tungumál.
Basshunter taldi upphaflega að Anna í laginu væri „botti“ á IRC-rás en í raun reyndist Anna bara vera venjuleg stúlka og lagið fjallar um þennan skemmtilega misskilning.
[breyta] Heimildir
- „Skämtet som blev sommarens första hit“, Svenska Dagbladet, 8. júní 2006
- „Hitmakaren Jonas: De ville göra narr av mig“, Expressen, 11. júní 2006
- Vefsíða Basshunters