Eiríkur Hauksson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eiríkur Hauksson (f. 4. júlí 1959) er íslenskur tónlistarmaður búsettur í Noregi frá 1988. Hann hefur m.a. verið meðlimur í hljómsveitunum Start, Drýsill og Artch en starfar nú sjálfstætt.
Árið 1985 urðu tvö lög sem Eiríkur söng, Gaggó Vest og Gull, eftir Gunnar Þórðarson mjög vinsæl og er hann helst þekktur á Íslandi fyrir þau lög ásamt þáttöku sinni í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1986 þar sem hann söng lagið Gleðibankinn.
Eiríkur tók aftur þátt í Söngvakeppninni 1991 fyrir hönd Noregs með lagið Mrs. Thompson en þar söng hann með hljómsveitinni Just 4 Fun.
Þann 17. febrúar 2007 var hann valinn til að flytja lagið Valentine lost (Ég les í lófa þínum) fyrir hönd Íslands í Söngvakeppninni 2007 sem haldin verður 12. maí í Helsinki í Finnlandi.