Galápagoseyjar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Galapagoseyjar, er eyjaklasi undan strönd Ekvadors og tilheyra þær landinu. Þar er fjölbreytt dýralíf og mikil náttúrufegurð. Þær eru í dag meðal annars þekktar fyrir rannsóknir Charles Darwin á dýralífi eyjanna en þær rannsóknir voru ein af undirstöðum þróunarkenningarinnar sem hann setti fram í Uppruna tegundanna.