Heard og McDonaldseyjar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Heard og McDonaldseyjar eru óbyggðar eyjar í Suðurhafi, um tvo þriðju af leiðinni frá Madagaskar að Suðurskautslandinu. Þær eru um 1700 kílómetra norðan við Suðurskautslandið og 4100 kílómetra suðvestur af Perth í Vestur-Ástralíu. Eyjarnar hafa tilheyrt Ástralíu síðan 1947. Á Heardeyju eru tvö virk eldfjöll, Big Ben og Anzactindur. Þetta eru einu virku eldfjöllin á áströlsku landsvæði. Big Ben er hæsta fjall Ástralíu, 2745 metra hátt og er hæsti tindur þess Mawsontindur. Á hinn bóginn eru engin fjöll á McDonaldseyjum. Eyjarnar hafa verið á heimsminjaskrá síðan 1997.
Staðsetning: Heardeyja: 53°06′ S 73°30′ E og McDonaldseyjar: 53°03′ S 72°36′ E.
Áströlsk fylki, svæði og höfuðborgir: | ![]() |
|||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæði Ástralíu | Nýja Suður Wales | Norður-svæðið | Queensland | Suður-Ástralía | Tasmanía | Victoria | Vestur-Ástralía | |
Canberra | Sydney | Darwin | Brisbane | Adelaide | Hobart | Melbourne | Perth | |
Norfolkeyja | Jólaeyja | Kókoseyjar | Kóralhafseyjasvæðið | Heard- og McDonaldeyjar | Ástralska suðurskautssvæðið |