Hvítá (Árnessýslu)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hvítá í Árnessýslu er jökulá sem kemur úr Hvítárvatni undir Langjökli. Meðalrennsli hennar við Gullfoss er 100 m³ en í flóðum getur vatnsmagnið allt að tuttugufaldast. Við Öndverðarnes rennur áin saman við Sogið og myndar Ölfusá.
Brýr eru á Hvítá við Brúarhlöð, Laugarás og norðan Bláfells á Kili.
[breyta] Ferðaþjónusta
Á Hvítá er hægt að fara í flúðasiglingar og eru einnig seld veiðileyfi í ána.