Jafngild þyngd
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Massi jafngildis (eða jafngild þyngd) er atómmassi frumefnis eða efnahóps deilt með gildinu sem að það hefur í efnasambandi.
Sem dæmi, vetni, með atómmassann 1,00794 og gildi 1, hefur jafngilda þyngd upp á 1,00794. Súrefni tekur gildið 2 og hefur atómmassa upp á 15,9994 og hefur þess vegna jafngilda þyngd 7,9997.
Frumefni geta tekið á sig mismunandi jafngildar þyngdir eftir efnasambandi. Til dæmis járn (atómmassi 55,845) hefur jafngilda þyngd 27,9225 ef að það er tvígilt í efnasambandinu, en 18,615 ef að það er þrígilt.
Hægt er að reikan jafngilda þyngd fyrir efni önnur en frumefni. Sem dæmi, karbónat efnahópurinn (CO3) hefur samanlagðann atómmassa 76,0083 og er tvígilt í efnasamböndum, þannig að jafngild þyngd þess er 38,00415.