JavaScript
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
JavaScript er hlutbundið forritunarmál sem er oft notað á vefsíðum. JavaScript er venjulega túlkað forritunarmál eða skriftumál. Helstu vafrar eru með innbyggðan JavaScript-túlk. JavaScript var upphaflega þróað af Brendan Eich starfsmanni Netscape Communications. Fyrsti innbyggði JavaScript-túlkurinn var hluti af Netscape Navigator 3.0 vafranum sem kom út 19. ágúst árið 1996.
JavaScript var staðlað árið 1997 undir heitinu ECMAScript. Staðallinn samsvarar JavaScript 1.5 og er núna líka orðinn ISO-staðall.
JavaScript er oft ruglað saman við forritunarmálið Java en þau eiga lítið sem ekkert sameiginlegt fyrir utan líkar málfarsreglur.
Snið:Forritunarstubbur