Menntaskólinn í Kópavogi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stofnaður | |
---|---|
Skólastjóri | Margrét Friðriksdóttir |
Nemendafélag | NMK |
Staðsetning | Digranesvegi 51, 200 Kópavogur |
Sími | 594 4000 |
Fax | 594 4001 |
Tölvupóstfang | mk@mk.is |
Gælunöfn | MK |
Gælunöfn nemenda | Mkingar |
Menntaskólinn í Kópavogi (oft skammstafað sem MK) er íslenskur menntaskóli, staðsettur við Digranesveg í Kópavogi. Skólinn var settur í fyrsta sinn 22. september 1973 af Ingólfi A. Þorkelssyni, skólameistara 1973-1993. Í skólanum eru um 1300 nemendur, og skiptist skólinn í þrjár megindeildir, bóknáms-, matvæla- og ferðamálasvið. Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi frá 1993 hefur verið Margrét Friðriksdóttir.
Efnisyfirlit |
[breyta] Gettu betur
Menntaskólinn í Kópavogi hefur einu sinni unnið sigur í Spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, árið 1989. Árin 2004 til 2006 skipuðu Jón Ingi Stefánsson og Víðir Smári Petersen liðið. Árið 2004 var liðsfélagi þeirra Egill Óskarsson, en árin 2005-2006 slóst Eiríkur Knudsson í hópinn. Nú leikárið 2006 - 2007 skipa liðið Andri Þorvarðarson, Eiríkur Knudsson og Ingvi Þór Sæmundsson.
[breyta] 1994
MK tapaði gegn Verzlunarskólanum í síðari útvarpsumferðinni. Liðið skipuðu Bjarni Benjamínsson, Snorri Freyr Dónaldsson og Jóhannes Birgir Jensson.
[breyta] 1995
MK fékk flest stig allra skóla í hraðaspurningum í útvarpskeppninni og vann báðar viðureignir þar örugglega. MK tapaði gegn Verzlunarskólanum í fyrsta leik átta-liða úrslita í sjónvarpinu eftir bráðabana. Viðureignin fór fram í Smáranum og athygli vakti að áður en keppni hófst tilkynnti dómarinn að reglum hefði verið breytt og pass yrði nú tekið sem endanlegt svar. Þrjú stig töpuðust í hraðaspurningunum sökum þessara reglubreytingar sem kom flatt upp á óviðbúin liðin. Liðið skipuðu Bjarni Benjamínsson, Snorri Freyr Dónaldsson og Jóhannes Birgir Jensson.
[breyta] 2004
MK hóf keppni gegn Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, Hornafirði. Lauk viðureigninni með sigri MK-inga, 25-19. Í annarri umferð keppninnar það ár keppti liðið gegn Fjölbrautaskóla Suðurnesja og vann stórsigur 32-8. Lið MK var þar með komið í 8-liða úrslitin í Sjónvarpinu í fyrsta skipti síðan 2000. Þar drógust drengirnir gegn Borgarholtsskóla, og fór sú viðureign fram þann 11. mars 2004. Lið MK beið þar lægri hlut, 32-18.
[breyta] 2005
Mannabreytingar urðu á MK-liðinu veturinn 2004-5, Egill Óskarsson var hættur, en í hans stað kom nýneminn Eiríkur Knudsson, sem áður hafði keppt fyrir hönd Snælandsskóla í GetKó, spurningakeppni félagsmiðstöðvanna í Kópavogi.
MK hóf keppni gegn Kvennó, og endaði keppnin með sigri MK-inga, 17-12. Því næst var röðin komin að liði FB, en sú viðureign endaði með sigri MK, 22-14. MK var þar með komið í 8-liða úrslit annað árið í röð. Lið MK dróst gegn liði Verzlunarskóla Íslands, og fór keppnin fram þann 16. febrúar 2005. Leikar enduðu svo að Verzlunarskólinn sigraði, 19-15.
[breyta] 2007
Mannabreytingar urðu aftur á MK-liðinu veturinn 2006-2007; Víðir Smári Petersen og Jón Ingi Stefánsson voru báðir hættir, en við af þeim tóku Andri Þorvarðarson og Ingvi Þór Sæmundsson, sem áður höfðu verið varamenn. Tóku þeir Víðir og Jón Ingi þá við þjálfun liðsins.
MK hóf keppni gegn Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra og vann sigur, 20-8. Í annarri umferð mætti skólinn Menntaskólanum Hraðbraut, og endaði sú viðureign með sigri MK, 23-19. Liðið komst þá í sjónvarpskeppnina (þ.e. 8-liða úrslit) og tókst lið MK þar á við lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Lið MK sigraði þar með 27 stigum gegn 17. Því næst var röðin komin að liði Menntaskólans við Hamrahlíð, en sú viðureign endaði með sigri MK, 33-31, eftir bráðabana. Lið MK er nú komið í úrslit þar sem það mætir liði Menntaskólans í Reykjavík.
[breyta] Tenglar
- MK.is - Vefsíða Menntaskólans í Kópavogi
- NMK.is - Vefsíða NMK, Nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi
Fyrri: Menntaskólinn í Reykjavík |
|
Næsti: Menntaskólinn við Sund |
Íslenskir framhaldsskólar |
---|
Borgarholtsskóli | Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Fjölbrautaskóli Suðurlands | Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Fjölbrautaskóli Vesturlands | Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki | Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Fjölbrautaskólinn við Ármúla | Flensborgarskólinn í Hafnarfirði | Framhaldsskólinn á Húsavík | Framhaldsskólinn á Laugum | Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu | Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Iðnskólinn í Hafnarfirði | Iðnskólinn í Reykjavík | Kvennaskólinn í Reykjavík | Landbúnaðarháskóli Íslands | Menntaskólinn á Akureyri | Menntaskólinn á Egilsstöðum | Menntaskólinn á Ísafirði | Menntaskólinn í Kópavogi | Menntaskólinn að Laugarvatni | Menntaskólinn í Reykjavík | Menntaskólinn Hraðbraut | Menntaskólinn við Hamrahlíð | Menntaskólinn við Sund | Sjómannaskólinn í Reykjavík| Verkmenntaskóli Austurlands | Verkmenntaskólinn á Akureyri | Verzlunarskóli Íslands |