Seljaskóli
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Seljaskóli er grunnskóli í Reykjavík. Skólinn er staðsettur að Kleifarseli 28, 109 Reykjavík.
Efnisyfirlit |
[breyta] Skólinn
Seljaskóli tók til starfa haustið 1979 og er starfsvið hans efri hluti Seljahverfis í Breiðholti. Seljaskóli er heildstæður einsetinn skóli og eru nemendur um 700 talsins. Við skólann starfa alls 87 manns og þar af 53 kennarar. Námsráðgjafi í fullu starfi og hjúkrunarfræðingur í hálfu starfi sinna nemendum í skólanum. Íþróttir eru kenndar í Íþróttahúsi Seljaskóla en sundkennsla fer fram í sundlaug Ölduselsskóla.
[breyta] Skólastjórn
Skólastjóri er Þórður Kristjánsson. Margrét Árný Sigursteinsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir gegna stöðu aðstoðarskólastjóra. Ásta Ásdís Sæmundsdóttir og Hendrik Jafetsson eru deildarstjórar skólans.
[breyta] Sjá einnig
[breyta] Heimildir
- Seljaskóli. Skoðað 11. febrúar, 2007.
- MENTOR ehf.. Skoðað 11. febrúar, 2007.