Tony Blair
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Anthony Charles Lynton Blair (fæddur 6. maí 1953) oftast þekktur sem Tony Blair er núverandi forsætisráðherra Bretlands. Hann hefur leitt Verkamannaflokkinn síðan í júlí 1994 og komst til valda eftir yfirburðasigur flokksins í þingkosningunum 1997. Hann tók þá við forsætisráðherraembættinu af John Major og batt enda á 18 ára samfellda stjórn Íhaldsmanna. Tony Blair hefur setið lengst allra forsætisráðherra Verkamannaflokksins og sá eini sem hefur leitt flokkinn til sigurs í þremur þingkosningum í röð.
Blair hefur fært flokkinn nær miðjunni í breskum stjórnmálum og kallað þessa stefnubreytingu „nýja Verkamannaflokkinn“ (e. New Labour). Flokkurinn er nú jákvæðari gagnvart markaðshagkerfiinu og orðinn fráhverfur þjóðnýtingu. Þessari stefnu hafa verið gefin nöfn á borð við „nútíma jafnaðarmennsku“ og „þriðja leiðin“ en margir af vinstri-sinnaðri flokksmönnum hafa orðið til að gagnrýna stefnubreytinguna og álíta flokkinn hafa færst of langt til hægri og snúið baki við þeim hugsjónum sem flokkurinn var byggður á, eins og jafnari skiptingu auðs í samfélaginu.
Hörð gagnrýni á Blair hefur einnig risið vegna þátttöku Breta í „stríðinu gegn hryðjuverkum“ og innrásinni í Írak. Í kosningum 2005 tapaði flokkurinn miklu fylgi en hélt þó meirihlutanum. Blair hefur lýst því yfir að hann hyggist ekki sækjast eftir fjórða kjörtímabilinu og búist er við að Gordon Brown, núverandi fjármálaráðherra, taki við af honum sem leiðtogi flokksins fyrir næstu kosningar sem verða í síðasta lagi 3. júní 2010.
Fyrirrennari: John Major |
|
Eftirmaður: enn í embætti |