3. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2006 Allir dagar |
3. júní er 154. dagur ársins (155. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 211 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1098 - Fyrsta krossferðin: Antíokkía féll í hendur krossfara eftir 8 mánaða umsátur.
- 1140 - Franski fræðimaðurinn Peter Abelard var ákærður fyrir trúvillu.
- 1334 - Haukur Erlendsson lögmaður lést. Hann dvaldist löngum í Noregi og átti þar sæti í ríkisráði. Við hann er kennd Hauksbók, sem meðal annars inniheldur Landnámu og Völuspá.
- 1620 - Bygging elstu steinkirkju í franska hluta Norður-Ameríku hófst í Quebec í Kanada.
- 1746 - Húsagatilskipunin gefin út. Þar var kveðið á um réttindi og skyldur húsbænda og hjúa og einnig ákvæði um uppeldi barna.
- 1800 - John Adams, forseti Bandaríkjanna, tók sér lögheimili í Washington, DC. Hvíta húsið var þó ekki tilbúið.
- 1844 - Síðustu tveir geirfuglarnir sem vitað er um veiddir í Eldey.
- 1866 - Pétur Pétursson vígður biskup. Hann var áður forstöðumaður prestaskólans.
- 1889 - Austur- og vesturströnd Kanada voru tengdar saman með lestarteinum.
- 1926 - Fílharmoníuhljómsveit Hamborgar undir stjórn Jóns Leifs, tónskálds, hélt tónleika í Iðnó í Reykjavík og voru þeir sagðir mesti listviðburður í sögu landsins.
- 1932 - Ríkisstjórn undir forsæti Ásgeirs Ásgeirssonar tók við völdum.
- 1937 - Flugfélag Akureyrar var stofnað, er síðar varð Flugfélag Íslands, hið þriðja með því nafni. Það sameinaðist síðar Loftleiðum og myndaði Flugleiðir.
- 1946 - Fimm fórust og fimmtíu manns misstu heimili sín í miklum eldsvoða á Ísafirði.
- 1950 - Annapurna, 10. hæsta fjall heims, var klifið í fyrsta sinn.
- 1951 - Bjarni Jónsson dómprófastur kvaddi söfnuð sinn í Dómkirkjunni í Reykjavík eftir 41 árs þjónustu. Talið er að hann hafi unnið fleiri prestsverk en nokkur annar hér á landi. Hann mun hafa jarðsungið yfir 6000 manns.
- 1951 - Fyrsta óperan uppfærð í Þjóðleikhúsinu: Rigoletto eftir Verdi.
- 1954 - Ein fyrsta ísbúð á landinu var opnuð: Dairy Queen við Hjarðarhaga í Reykjavík.
- 1968 - Valerie Solanas reyndi að drepa Andy Warhol með því að skjóta hann þrisvar.
- 1973 - Bob Marley and the Wailers gáfu út breiðskífuna Exodus, sem síðar var valin Breiðskífa aldarinnar af tímaritinu Time.
- 1974 - Menntaskólinn á Ísafirði útskrifaði fyrstu stúdentana.
- 1983 - Víkingasveit lögreglunnar í Reykjavík var komið á fót með 12 sérþjálfuðum mönnum.
- 1989 - Jóhannes Páll páfi kom til Íslands og söng meðal annars messu við Landakotskirkju. Þúsundir sóttu þá messu.
- 1997 - Lionel Jospin varð Forsætisráðherra Frakklands.
- 2006 - Svartfjallaland lýsti yfir sjálfstæði.
[breyta] Fædd
- 1864 - Ransom E. Olds, bandarískur bílaframleiðandi (d. 1950).
- 1925 - Tony Curtis, bandarískur leikari.
- 1942 - Curtis Mayfield, bandarískur lagahöfundur og tónlistarmaður (d. 1999).
- 1946 - Ian Hunter, enskur tónlistarmaður (Mott the Hoople).
- 1950 - Suzi Quatro, bandarísk leikkona og tónlistarmaður.
- 1964 - Kerry King, bandarískur tónlistarmaður (Slayer).
[breyta] Dáin
- 1334 - Haukur Erlendsson, lögmaður.
- 1657 - William Harvey, enskur læknir (f. 1578).
- 1964 - Frans Eemil Sillanpää, finnskur rithöfundur og verðlaunahafi bókmenntaverðlauna Nóbels (f. 1888).
- 1975 - Eisaku Sato, Forsætisráðherra Japans og verðlaunahafi friðarverðlauna Nóbels (f. 1901).
- 1977 - Archibald Vivian Hill, enskur lífeðlisfræðingur (f. 1886).
- 1989 - Ayatollah Ruhollah Khomeini, íranskur shíta-leiðtogi (f. 1900).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |