Öskjuhlíð
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Öskjuhlíð er hæð í Reykjavík, austan við Reykjavíkurflugvöll og vestan við Fossvogskirkjugarð, rétt norðan við Fossvoginn og Nauthólsvík. Hæðin er útivistarsvæði og í vesturhlíðinni hefur verið mikil skógrækt frá 1950. Efst uppi á Öskjuhlíð eru áberandi sex hitaveitutankar sem áður söfnuðu heitu vatni sem síðan var látið renna niður í húsin með þyngdaraflinu. Þeir eru nú tómir og hýsa t.d. sýningar og fundarsali. Ofaná tönkunum er áberandi hvolfþak úr gleri sem er kallað Perlan.
Í Öskjuhlíð er hægt að sjá mikið af bæði jarðsögulegum og menningarsögulegum minjum. Jökulsorfið berg frá síðustu ísöld er t.d. að finna nálægt Nauthólsvík. Skógur virðist hafa verið í hlíðinni frá upphafi og líklega hefur verið þar seljabúskapur. Þar er einnig að finna merki þess að sjávarhæð hafi verið hærri. Þegar gerð Reykjavíkurhafnar hófst 1913 var lögð járnbraut úr hlíðinni niður að höfninni til að flytja efni til hafnargerðarinnar.
Í Síðari heimsstyrjöldinni reistu Bandamenn ýmis mannvirki í hlíðinni og héldu áfram grjótnámi þar nálægt þar sem Keiluhöllin stendur. Fyrsti heitavatnstankurinn var reistur 1940. Upprunalegu tankarnir voru síðan rifnir og endurbyggðir 1986 til 1987 og Perlan byggð ofan á þá.