Þjóðþing Danmerkur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þjóðþing Danmerkur (danska: Folketinget) er löggjafarsamkunda Danmerkur. Frá 1953 situr þingið í einni deild, en fram að þeim tíma var því skipt í þjóðþingið annars vegar og landsþingið hins vegar.
Fjöldi þingmanna er 179, þar af tveir frá Færeyjum og tveir frá Grænlandi, kjörnir til fjögurra ára í senn.
Þjóðþingið kemur saman í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn.