Þorlákur helgi Þórhallsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þorlákur Þórhallsson helgi (1133 – 23. desember 1193) var biskup í Skálholti frá 1178. Hann lærði fyrst í Odda hjá Eyjólfi Sæmundarsyni fróða en fór síðan utan og lærði í París og Lincoln á Englandi. Hann var kjörinn biskup á Alþingi 1174 en hann var ekki vígður fyrr en í Niðarósi 2. júlí 1178. Hann átti í miklum deilum við veraldlega höfðingja, þar á meðal Jón Loftsson í Odda, um forræði kirkjunnar yfir eignum kirkna í landinu.
Hann var tekinn í dýrlinga tölu á Íslandi og áheit á hann leyfð árið 1198. Bein hans voru tekin upp 20. júní það sama ár. Hann á tvo messudaga á ári; Þorláksmessu á vetri, 23. desember og Þorláksmessu á sumri 20. júní.
Jóhannes Páll II páfi útnefndi Þorlák verndardýrling Íslands 14. janúar 1985.
Fyrirrennari: Klængur Þorsteinsson |
|
Eftirmaður: Páll Jónsson |