17. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jan – Febrúar – Mars | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | |||
2007 Allir dagar |
17. febrúar er 48. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 317 dagar (318 á hlaupári) eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1600 - Giordano Bruno var brenndur á báli fyrir villutrú.
- 1737 - Tólf manns fórust í ofviðri og mikill annar skaði varð á Norðurlandi.
- 1867 - Fyrsta skipið sigldi um Súesskurðinn.
- 1906 - Blaðið Ísafold birti fyrstu íslensku fréttamyndina. Var það teiknuð mynd af Friðriki áttunda að ávarpa mannfjölda.
- 1943 - Þormóðsslysið: Þormóður frá Bíldudal fórst á Faxaflóa á leið til Reykjavíkur og með skipinu 31 maður, þar af 22 frá Bíldudal.
- 1947 - Ingólfur Arnarsson, fyrsti nýsköpunartogarinn, kom til landsins. Skipið var smíðað í Bretlandi.
- 1968 - Kolakraninn við Reykjavíkurhöfn var rifinn sama ár og fyrsti áfangi Sundahafnar var tekinn í notkun.
- 1972 - Sala Volkswagen-bjöllu fór fram úr Ford T.
- 1992 - Mani pulite hófst á Ítalíu með handtöku Mario Chiesa.
- 1994 - Apple QuickTake, fyrstu stafrænu myndavélarnar fyrir almennan markað sem hægt var að tengja við tölvu, komu á markað.
- 1996 - Garrí Kasparov sigraði Deep Blue í skák.
[breyta] Fædd
- 1920 - Ivo Caprino, norskur teiknimyndaleikstjóri.
- 1963 - Michael Jordan, körfuknattleiksmaður.
- 1972 - Billie Joe Armstrong, bandarískur söngvari og tónlistarmaður (Green Day).
- 1981 - Paris Hilton, bandarísk leikkona og milljónaerfingi.
- 1982 - Adriano Leite Ribeiro, brasilískur knattspyrnumaður.
[breyta] Dáin
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |