Bjarndýr
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Kodiakbjörn
|
|||||||||||
Vísindaleg flokkun | |||||||||||
|
|||||||||||
![]() |
|||||||||||
|
|||||||||||
|
Bjarndýr (Ursidae) eru ætt rándýra. Einkenni bjarndýra er að þau eru sterk og borða næstum hvað sem er. Þó eru undantekningar, svo sem ísbjörninn sem nærist aðallega á selum og pandan sem nærist að mestu á bambus. Þó éta þau ekki bara þessa fæðu þar sem ísbirnir leggjast á hvalhræ og pöndur éta leifar eftir hlébarða og veiða stöku auðvelda bráð. Bjarndýr skiptast í sjö ættkvíslir sem dreifast á þrjá undirættbálka:
Ailuropodinae
- Panda (risapanda) (Ailuropoda melanoleuca)
Tremarctinae
- Gleraugnabjörn (andesbjörn) (Tremarctos ornatus)
Ursinae
- Skógarbjörn (Ursus arctos)
- Ísbjörn (hvítabjörn) (Ursus maritimus)
- Svartbjörn (Ursus americanus)
- Kragabjörn (Selenarctos thibetanus)
- Malajabjörn (sólbjörn) (Helarctos malayanus)
- Letibjörn (varabjörn) (Melursus ursinus)