Evrópuráðið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Evrópuráðið er alþjóðasamtök 46 ríkja í Evrópu stofnuð 5. maí 1949. Aðild er opin öllum Evrópuríkjum sem teljast réttarríki byggð á lögum og virða grundvallar mannréttindi og frelsi borgara sinna.
Með mikilvægustu verkum ráðsins var samþykkt Mannréttindasáttmála Evrópu árið 1950 og stofnun Mannréttindadómstóls Evrópu til að fylgja eftir sáttmálanum.
Evrópuráðið hefur höfuðstöðvar í Strasborg nálægt landamærum Frakklands og Þýskalands, höfuðstöðvarnar eru í byggingu sem nefnist Evrópuhöllin og er á jaðri miðborgarinnar.
Evrópuráðið tengist ekki Evrópusambandinu, öll aðildarríki ESB eru einnig í Evrópuráðinu en ekki eru öll aðildarríki ráðsins í Evrópusambandinu. Til að flækja málin þá eru tvær stofnanir innan ESB með keimlík nöfn, þ.e. Evrópska ráðið og Ráð Evrópusambandsins.
[breyta] Markmið
Í kjölfar síðari heimsstyrjaldar var vilji leiðtoga Evrópu sá að koma í veg fyrir frekari stríðsátök í Evrópu í framtíðinni, bráðnauðsynlegt skref í þá átt væri að tryggja að í öllum Evrópulöndum væru mannréttindi allra einstaklinga virt og að stuðla ætti að gagnkvæmum skilningi og samvinnu meðal Evrópuþjóða.
Markmiðin: