Fjölbrautaskóli Suðurlands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fjölbrautaskóli Suðurlands er íslenskur fjölbrautaskóli staðsettur á Selfossi. Hann var stofnaður árið 1981 og á rætur sínar að rekja til Iðnskólans á Selfossi, framhaldsdeildanna við Gagnfræðaskólann á Hvolsvelli, Selfossi, Skógum og í Hveragerði og til öldungadeildarinnar í Hveragerði. Núverandi skólameistari er Örlygur Karlsson.
Efnisyfirlit |
[breyta] Kennsluhúsnæði
Kennsluhúsnæði skólans eru þrjú; Oddi, Hamar og Iða. Oddi er bóknámshús skólans og var tekinn í notkun 1987. Seinni hluti byggingarinnar var tekinn í notkun 1994. Hamar var tekið í notkun 1974 og hafði verið notað við Iðnskólann á Selfossi. Í Hamri eru kenndar húsasmíði, málmsmíði, raf- og bilvélavirkjanagrunnar. Iða er íþróttahús skólans og einnig eru nokkrar kennslustofur í henni. Iða var tekin í notkun haustið 2004 og var þá hætt að kenna íþróttir á framhaldsskólastigi í íþróttahúsi Árborgar við Sólvelli.
Auk þess er skólinn með nemendagarða við Eyraveg sem kallast Fosstún.
[breyta] Körfubolta-akademía
Haustið 2005 var sett á laggirnar körfuboltaakademía við skólann og keppir lið skólans í þremur aldursflokkum undir merkjum F.Su. Nær allir drengirnir búa á nemendagörðum við Eyraveg.
[breyta] Fótbolta-akademía
Haustið 2006 var sett á laggirnar fótboltaakademía.
[breyta] Handbolta-akademía
Sömu önn og fótboltaakademáin var stofnuð, eða haustið 2006, þá var sett á laggirnar handboltaakademía.
[breyta] Tengill
Fyrri: Enginn |
|
Næsti: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti |
Íslenskir framhaldsskólar |
---|
Borgarholtsskóli | Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Fjölbrautaskóli Suðurlands | Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Fjölbrautaskóli Vesturlands | Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki | Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Fjölbrautaskólinn við Ármúla | Flensborgarskólinn í Hafnarfirði | Framhaldsskólinn á Húsavík | Framhaldsskólinn á Laugum | Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu | Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Iðnskólinn í Hafnarfirði | Iðnskólinn í Reykjavík | Kvennaskólinn í Reykjavík | Landbúnaðarháskóli Íslands | Menntaskólinn á Akureyri | Menntaskólinn á Egilsstöðum | Menntaskólinn á Ísafirði | Menntaskólinn í Kópavogi | Menntaskólinn að Laugarvatni | Menntaskólinn í Reykjavík | Menntaskólinn Hraðbraut | Menntaskólinn við Hamrahlíð | Menntaskólinn við Sund | Sjómannaskólinn í Reykjavík| Verkmenntaskóli Austurlands | Verkmenntaskólinn á Akureyri | Verzlunarskóli Íslands |