Georg VI
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Georg VI (Albert Frederick Arthur George Windsor) (14. desember 1895 - 6. febrúar 1952) varð konungur breska heimsveldisins og keisari Indlands þann 11. desember 1936 og ríkti til dauðadags. Hann tók við völdum er eldri bróðir hans, Játvarður VIII (Edward VIII) afsalaði sér konungdómi til þess að geta gifst unnustu sinni, en hún var fráskilin. Georg VI var síðasti keisari Indlands (til 1947) og síðasti konungur Írlands til 1948, er Írland yfirgaf heimsveldið. Hann var þriðji breski konungurinn sem notaði nafnið Windsor, en faðir hans, Georg V, tók það upp.
Georg VI fæddist í York Cottage í Norfolk. Foreldrar hans voru Georg prins, hertogi af York (síðar Georg V konungur) og kona hans María hertogaynja af York (síðar drottning). Föðurforeldrar hans voru Játvarður prins af Wales, síðar konungur, og kona hans Alexandra prinsessa af Danmörku og síðar drottning. Móðurforeldrar Georgs voru Francis prins og hertogi af Teck og María Adelaide prinsessa af Cambridge.
Hann giftist 26. apríl 1923 og var kona hans Elísabet Bowes-Lion. Hún taldist til almennings samkvæmt reglum hirðarinnar, þó svo að hún væri afkomandi bæði Róberts I Skotakonungs og Hinriks VII Englandskonungs, en við giftingu þeirra hlaut hún titilinn Her Royal Highness The Duchess of York. Þau eignuðust tvær dætur:
- Elísabet II (f. 21. apríl 1926) og
- Margrét prinsessa (f. 21. ágúst 1930, d. 9. febrúar 2002).