Gjóska
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gjóska (gríska og eldra heiti á íslensku: tefra) er samheiti gosefna sem þeyst hafa upp úr eldgíg, storknað að hluta til eða fullu á fluginu og fallið til jarðar.
Gjóska skiptist eftir kornastærð í klepra, gjall, vikur og ösku. Hún er blöðrótt og létt í sér og getur flotið tímabundið á vatni (uns hún verður vatnsósa).
Jarðfræðingar nota gjósku í jarðvegslögum til að geta sér til um hegðun fyrri eldgosa.
[breyta] Orðsifjar
Sigurður Þórarinsson bað Vilmund Jónsson landlækni að smíða íslenskt orð í stað gríska orðsins tefra sem samheiti yfir eldfjallaösku, vikur og gjall. Orðið kom fyrst út á prenti árið 1968 í tímaritinu Náttúrufræðingurinn.
[breyta] Heimildir
- Vísindavefurinn: „Er til steinn sem flýtur?“
- Gjóskurannsóknir. Skoðað 25. nóvember, 2005.
- Orðabók Háskólans. Skoðað 25. nóvember, 2005.