Hermann Gunnarsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hermann Gunnarsson (þekktastur sem „Hemmi Gunn“) fæddur 9. desember 1946, var einn fremsti knattspyrnumaður Íslands á sjöunda áratugnum. Hann spilaði með Val á blómaskeiði félagsins, en var einnig landsliðsmaður. Hemmi þótti einnig nokkuð liðtækur í handbolta og lék nokkra landsleiki í íþróttinni. Hann átti m.a. markametið yfir flest mörk skoruð í landsleik í mörg ár, þar til það var bætt af Gústaf Bjarnasyni í leik gegn Kína árið 1995. Hemmi stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands. Að knattspyrnuferlinum loknum tók hann til starfa sem íþróttafréttamaður hjá Sjónvarpinu. Hann starfaði þar um árabil, þó ekki væri hann alltaf íþróttafréttamaður. Á níunda áratugnum hóf hann að stjórna sínum eigin sjónvarpsþætti hjá RÚV, Á tali hjá Hemma Gunn. Þátturinn varð geysivinsæll og er líklega vinsælasti sjónvarpsþáttur í íslensku sjónvarpi fyrr og síðar. Í lok mars 2005 hóf göngu sína nýr tónlistargetraunaþáttur undir stjórns Hermanns, Það var lagið, sem sýndur var á Stöð 2. Stjórnaði þættinum Í sjöunda himni á Stöð 2 veturinn 2006-'07.
Hefur sungið á hljómplötum, bæði einn og með öðrum, m.a. með Ladda. Hljómplata Hemma, Frískur og fjörugur þykir með skemmtilegri hljómplötum seinni tíma á Íslandi. Á henni er að finna lög eins og Einn dans við mig og Fallerí, fallera. Hann starfaði lengi sem fararstjóri og rak veitingastað í Tælandi. Árið 2003 starfaði hann sem kynningarstjóri Vestfirska forlagsins.