Jan Mayen
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Jan Mayen er líka nafn á íslenskri hljómsveit.
Jan Mayen er norsk eldvirk eyja í Norður-Íshafi, um 550 km norðaustur af Íslandi. Eyjan er um 380 km² að flatarmáli, 53.6 km löng, með strandlengju upp á 124 km og breidd hennar er á bilinu 2.5 - 15.8 km. Jan Mayen teygir sig frá suðvestri til norðausturs og á norðausturhluta eyjarinnar er hið risavaxna eldfjall Beerenberg sem er 2277 m hátt. Jan Mayen teygir sig frá 70°50'N og 9°03'W í suðri til 71°10'N og 7°57'W í norður.
[breyta] Fundur og nafngift
Ekki er óhugsandi að það hafi einmitt verið Jan Mayen sem Beda munkur fann á 6. öld e.Kr. þegar hann segir frá eldi spúandi eyju í norðri þar sem dagur var allan sólarhringinn. Einnig má vel vera að víkingasjómenn hafi vitað um eyjuna. En, Henry Hudson fann síðan eyjuna 1607 á einni af fjórum ferðum sínum um Norður-Íshafið er hann leitaði að siglingaleið til Kína. Hvalveiðimenn sigldu í kjölfarið til eyjarinnar sem fékk árið 1614 nafnið Jan Mayen eftir hollenska hvalveiðiskipstjóranum Jan Jacobs May van Schellinkhout.